Títt Spurt og Svarað

Úr Wikipedia, frjálsu alfræðiorðabókinni


Efnisyfirlit

Hvað er openSUSE verkið?

OpenSUSE verkið er samfélags verkefni sem er fjármagnað af Novell. Með því að kynna notkun Linux hvarvetna, býður þetta verkefni upp á frjálsan, og léttan aðgang að mest nothæfri dreifiútgáfu Linux í heiminum, SUSE Linux. OpenSUSE býður upp á allt sem forritarar og áhugamenn þurfa á að halda til að þróa fyrir Linux. Með því að hýsa verkið á opensuse.org býður verkið upp á léttan aðgang að byggingu og útgáfum. Það býður einnig upp á víðtæk samfélags verkfæri til þróunar, sem veita aðgang að taka þátt í framleiðslu SUSE Linux.

Hver eru makrmið openSUSE?

OpenSUSE verkið, hefur þrjú megin markmið:

  • Gera SUSE Linux einfaldasta kerfið fyrir almúgann að ná í og mest notuðu Linux dreifiútgáfuna.
  • Hífa upp opna þróunarsamvinnu til að gera SUSE Linux að mest nothæfri dreifiútgáfu og vinnu umhverfi fyrir nýja og reynda Linux notendur.
  • Opna og einfalda þróun og pökkun til að gera SUSE Linux forval Linux forritara og hugbúnaðar framleiðenda.

Hverjir ættu að taka þátt í þróun openSUSE?

Linux forritarar og Linux notendum hvarvetna er ávallt velkomið að leggja hönd að verki. Við álítum að verkið muni höfða sérstaklega til:

  • Miljóna SUSE notenda um heim allan
  • Reyndra Linux verkfræðinga og hugbúnaðar forritara sem vilja byggja eigin pakka fyrir SUSE Linux
  • Linux sérfræðinga fyrirtækja, sem líta á SUSE Linux sem þá dreifiútgáfu er stöðugt ber fram síðustu Linux pakkana til samfélagsins í stöðugri kerfis byggingu.

Notendur Linux og aðrir sem áhuga hafa á að byrja nota Linux geta heimsótt openSUSE.org til að ná í síðustu opinbera útgáfu af SUSE Linux. Þeir sem eru meira tæknilega sinnaðir og vilja taka beinan þátt í þróun SUSE Linux. Geta náð í síðustu þróunarútgáfu dreifingarnnar og sent inn skýrslur og endurbætur gegn um Bugzilla.

Þurfa þáttakendur að skrá sig?

Venjulega, nei. Engrar skráningar er þörf til að ná í hugbúnað, stýrikóða eða vera með á póstlistum. Aftur á móti er skráningar þörf til að tilkynna um galla, senda inn beiðni um betrumbætur eða senda inn forritabætur.

Hvernig er openSUSE skipulagt og stjórnað?

Öll árangursrík samfélög um opin kerfi byrja með framsýn, ásamt stuðningi og stjórnun lítils hópar fólks sem einsetur sér markmið verksins. Í upphafi, mun openSUSE vera stutt af starfsmönnum Novell, þar á meðal verkfræðingum, vef, markaðs og stjórnar krafti sem einsetur sér markmið verksins. Þegar openSUSE samfélagið vex - og þegar það þróar sterka samfélags stjórn - getur Novell og openSUSE samfélagið í sameiningu ákveðið önnur stjórnarform.

Í dag er openSUSE verkið stjórnað af nokkrum vel reyndum starfsmönnum Novell og Linux forriturum, ásamt nokkrum hæfum SUSE Linux notendum og prófurum. Kjarna hópur openSUSE inniheldur upphaflega: Andreas Jaeger, Adrian Schröter, Sonja Krause-Harder, Christoph Thiel, Michael Löffler and Greg Mancusi-Ungaro. Til að sjá aðra meðlimi hópsins, skoðið notendalistann.

Hver er tímaáætlun fyrir útgáfur openSUSE?

SUSE Linux 10.0 hefur verið gefið út. Unnið er nú að útgáfu SUSE Linux 10.1. Eins og ávallt, mun openSUSE veita reglulegar tökur af síðustu þróunarútgáfunni. Verkfræði áætlun og þróunarleiðarvísir eru gefnir út á vefsíðu verksins: www.opensuse.org.

Hver er verkáætlunin fyrir openSUSE samfélags hugbúnað?

Verk áætlanir og vegvísar eru aðgengilegir á heimasíðu openSUSE: Vegvísir. Í upphafi mun vegvísir openSUSE samanstanda af þremur þrepum.


Fyrsta þrep: (Ágúst 2005)

  • Stofna openSUSE samfélagið
  • Bera fram megin skipulag samfélagsins: vefsíða, tilbúnar útgáfur, og keldur. Setja upp Bugzilla, og IRC rásir.
  • Taka við endurbætum á SUSE Linux 10.0 beta í gegnum bugzilla.
  • Setja á fót beta test á SUSE Linux 10.0.


Annað þrep: (miðast við vorið 2006)

  • Einfalda hvernig endurbætur eru sendar inn og setja á fót kerfi fyrir inn-/útskráningu kóða
  • Skráning forritara, til að einfalda þáttöku í þróunarferli openSUSE


Þriðja þrep: (miðast við sumarið 2006)

  • Kynna fullkomið samfélags skipulag - með almennum aðgangi að byggingar þjóni, pakkarar geta á fjótlegan hátt skapað pakka og bætt þeim inn í prófunar útgáfur af dreifiútgáfunni.


Þetta er einungis vinnuáætlun fyrir openSUSE verkið. Smám saman þegar samfélags meðlimir verða virkir, munu þessar tímaáætlanir og forgangar aðlagast og betur lýsa þörfum openSUSE samfélagsins.

Af hverju setur Novell á fót openSUSE samfélagið núna?

OpenSUSE verkið var sett á fót í beinu samhengi við þarfir viðskiptavina okkar. Með miljónir notenda um heim allan, er SUSE Linux þekkt fyrir frumsýn og auðvelda notkun, og er á meðal vinsælustu Linux dreifinga sem eru til í dag. SUSE Linux notendur hafa beðið um fleiri tækifæri til að vinna saman að prófun, hönnun og samsetningu á nýjum SUSE Linux eiginleikum. Nú, í gegnum openSUSE verkið, hafa notendur hvarvetna möguleikan á að forma og bæta þann hugbúnað sem þeir nota á persónu tölvum sínum og heima neti. Þeir munu líka á endanum, hafa áhrif á söluvöruna SUSE Linux sem fyrirtæki nota til að keyra hugbúnað sinn.

Hvert er samhengið milli openSUSE og Novell?

OpenSUSE verkið er fjármagnað af Novell, sem stendur fyrir stórvægilegum hönnunar, stýringar og skipulags þáttum verksins. Novell, í samvinnu með openSUSE samfélagið, setur fram hönnunar markmið verksins and stendur fyrir endanlegri ábyrgð. SUSE Linux stýrikerfið og tengd opin forrit eru notuð af NOvel sem grunnur fyrir hinum full studdu og hertu fyrirtækja útgáfum (til dæmis, Novell Linux Desktop).

Mun Novell halda áfram að selja neytenda-byggðar SUSE Linux útgáfur í verzlunum?

Já. Eitt markmiða openSUSE verksins er að gera SUSE Linux auðveldlega aðgengilegt hverjum sem er. Þó að margir SUSE Linux notendur geti náð í hugbúnaðinn frá heimasíðu verksins eða frá speglum um veröld alla, munu aðrir SUSE Linux notendur heldur vilja hafa kropplegt afrit af vörunni. Í samvinnu við Novell, mun openSUSE verkið halda áfram að búa til full pakkaða smásölu útgáfu af dreifingunni sem mun verða til sölu í verzlunum og vef verzlunum um allan heim. Smásölu útgáfan samanstendur af innsetjanlegum miðli, prentuðum leiðbeiningum og nokkrum aukalegum forritum sem einungis eru fáanleg á söluformi, ásamt takmarkaðri tæknilegri aðstoð. Tilvist smásölu útgáfu með mögulegri aðstoð skilur SUSE Linux frá sérhverri annarri samfélags-byggðri Linux dreifingu.

Hver er munurinn á SUSE Linux og öðrum tilboðum frá Novell Linux, þar á meðal Enterprise Server 9, Novell Open Enterprise Server og Novell Linux Desktop?

SUSE Linux, skapað og viðhaldið af openSUSE verkinu, er stöðugt, íbyggt Linux stýrikerfi sem inniheldur seinustu opnu pakka fyrir skrifvinnslu, myndvinnslu, vef-síðu skrif, netvinnslu skipulaggningu og þróun hugbúnaðar. Það inniheldur allt sem þú þarf til að geta hafist handa með Linux og hæfir sérstaklega þeim sem vilja nota linux sem persónulega vinnustöð eða keyra eigið heima net.

Novell lagfærir og endurbætir SUSE Linux til að gera herta og studda svítu Linux hugbúnaðar til fyrirtækja notkunnar, sem hæfir til gagna uppsettningar, enda þjóns uppsettningar, vinnustöðva fyrirtækja, og uppsettningu á skipulegu tölvuumhverfi fyrirtækja.

Hver er munurinn á openSUSE og Fedora?

Fedora verkið, sem er fjármagnað af Red Hat, er opin kelda með sterkt samfélag að baki. Það eru að auki, mörg önnur mikilvæg verk sem byggjast á opinni keldu, svo sem Debian og Ubuntu. Sem þjóna virkum notendum og þróunar umhverfum. Almennt talað, þá einblýna þessi verk að verklegum þáttum sem þjóna tæknilegu samfélagi þeirra af Linux forriturum og notendum.

OpenSUSE verkið lítur umfram tæknilegar kringumstæður og á hið breiða svið manna sem ekki eru tæknisinnaðir, en eru áhugamenn um Linux. OpenSUSE verkið býr til -- í gegnum opin og sýnileg þróunarstig -- stöðugt, slípaða Linux dreifiútgáfu (SUSE Linux) sem ber fram allt það sem notandinn þarf til að geta byrjað með Linux. (Stöðugt hefur verið vitnað í SUSE Linux sem best hannaða og mest nothæfu Linux útgáfuna.) Til að fullnægja markmiði sínu að færa öllum notendum Linux, veitir openSUSE mögulegum Linux notendum almennan aðgang að SUSE Linux í gegn um ólika þætti, meðal annars smásölu útgáfu með leiðbeiningum fyrir notendur. Einungis openSUSE verkið endurvinnur Linux dreifinguna þannig að fólk sem ekki er tæknilega kunnandi geti notið þess að fá reynslu af Linux.

Ef borin saman við Fedora sérstaklega, þá nýtir openSUSE og þróar mikilvæga opna staðla sem ekki eru með í Fedora, svo sem CIM (the Common Information Model), og YaST (staðlað, opinn uppsettningar og stillingar svíta fyrir Linux). Að auki, leggur openSUSE mikið á sig til að auka vinnuborð og almennt nothæfi, sem er styrkt af mörgum efstu GUI hönnuðum í heiminum.

Hversu lengi eru öryggis uppfæringar gefnar út fyrir SUSE Linxu?

SUSE Linux er uppfært á tveggja ára fresti. Til að fá uppfæringar í lengri tíma en þetta, býður Novell upp á sérstakar fyrirtækja-hæfar Linux lausnir byggðar á SUSE Linux.

Fedora þvingar þig að uppfæra í nýjustu útgáfuna til að vera með það nýlegasta, jafnvel fyrir öryggis uppfærslur. Hvernig meðhöndlar OpenSUSE þetta?

Þetta er jafnframt tilfellið fyrir allar þróunarútgáfur (alfa/beta) á SUSE Linux, en ekki fyrir loka útgáfur.


Hvernig geta tímarit orðið sér úti um útgáfu af SUSE Linux?

Tímarit þurfa oft útgáfu af SUSE Linux sem er aðlagað þörfum þeirra. Það er nokkuð eftir enn, til að ná þessu marki. Ef þér hefur í huga að láta SUSE Linux útgáfu fylgja tímariti yðar, vinsamlega hafið samband með einhverju rafpóstfangi hér neðan: